15september

þetta til enn

Jamm það er víst og kallinn er lifandi og ekki minna sköllóttur en þegar síðast var hér ritað. Margt hefur á daga mína drifið síðan síðast en það skulum við láta kjurt liggja. í bili að minnsta kosti.
15. september 2008 klukkan 14:41

Engin athugasemd
14maí

alltaf lærir maður eitthvað nýtt

Í dag lærði ég að skipta um belti á 6 tonna gröfu og komst að því að ef maður reynir að lyfta þessu drasli einn þá drullar maður í buxurnar.
14. maí 2007 klukkan 23:09

Engin athugasemd
13maí

alltaf eitthvað

Jæja þessi helgi búinn. Evrovision og kosningar að baki og sömuleiðis enn ein skemmtileg pabbahelgin. Við fórum í sund og átum ís og horfðum á myndir. Svo enduðum við helgina á að fara með jeppadýrið út í húsnæði þar sem verður skipt um mótor í kvikindinu. Smári er mjög spenntur fyrir þessu öllu og vill ólmur taka sem mest þátt í ævintýrinu. Ég hef hugsað mér að leifa honum að vera svolítið með en ég veit að hans þolinmæði er ekki sú mesta þannig að það kemur í ljós hvað hann endist mikið í þessu. Auðvitað má hann vera eins mikið og hann vill en ég á samt ekki von á að það verði mikið. fjallabilafelagid.com kemur til með að hýsa myndir af öllu saman vonandi einhverjum til skemmtunar. Þar sem ég var með púkann um helgina þá var ekki mikið um áfengisneyslu yfir leiðinlegu sjónvarpsefni á borð við evrovision og kosningar konan sá alfarið um þá deild endaði í vinstri græna partýi en flúði heim þegar liðið fór á kosningavöku.Persónulega finnst mér stjórmál svo ofboðslega leiðinleg að ég forðast að koma nálægt þeim. Þetta snýst um það að vera sammála um það að vera ósammála. Annars er þetta lið meira og minna sammála en það orðar hlutina mismunandi og getur rifist endalaust um ekki neitt. Upp til hópa vitleisingar. Hundurinn gekk í stjórnmálaaflokk um daginn og fór að rífast við köttinn um ellilífeyri svo ég skaut hann.
13. maí 2007 klukkan 23:35

1 athugasemd
10maí

murrrrrrrrffffffffff..........

Að horfa á evrovision er EKKI góð skemmtun. Þessi keppni er aðeins við hæfi kófdrukkina áhorfenda. Eindregið er mælt með notkun eyrnahlífa og eða eyrnatappa. Einnig er óhófleg neysla áfengra drykkja og ofskynjunnarlyfja. Eigið yndislegt rænuleysiUllandi

10. maí 2007 klukkan 20:31

Engin athugasemd
16apríl

er hér enn

Jamm kallinn er enn hérna jafn sköllóttur og síðast.  Nokkrum fylleríum og jeppaferðum síðar. Stundum rann þetta saaman í eitt seg gerði grínið mun skemmtilegra. Er að fara fá nettengingu heim til mín svo ég fer að geta komið frá mér spakmælum með mun meiri krafti en ég hef getað hingað til en þangað til............................
16. apríl 2007 klukkan 22:44

Engin athugasemd
28desember

hummpfff

Jú sælgætisát og annar viðlíka viðbjóður er í hávegum hafður í dag sem aðra daga í þessu jólafríi. Tekist hefur að halda hreifingu í algeru lágmarki  enda er maður í fríi og nýtur þess að gera ekki neitt. Jeppinn klár fyrir ferðina norður og erum við að spá í að fara þegar Hófí er búin að vinna á morgun eða á laugardagsmorguninn. Annars er mjög lítið í gangi hjá manni þessa dagana maður endar árið í letikasti frá helvíti og nýtur þess. Núna nenni ég ekki að skrifa meira því þetta kallar á allt of mikla hreyfingu.
28. desember 2006 klukkan 21:44

1 athugasemd
28desember

Og belgsöfnunin heldur áfram. Endalaust ofát undanfarna daga er ekki enn farin að hafa áhrif á miðjuummál mitt. Þá er bara eitt til ráða og það er að éta meira. Ég hef stefnt að því í mörg ár að verða feitur en árangurinn hefur látið á sér standa. Hef ég ákveðið að hætta að reyna að hafa áhrif á ummál mitt og láta það stjórna sér sjálft. En meira þessu tengt því áramótaheitið þetta árið er að éta meira og  hreifa sig minna.  Annars ætlum við skötuhjúin að eiða áramótunum á húsavík hjá tengdó. Ætli henni verði ekki bannað að koma með mig þangað aftur enda strákurinn ekki húsum hæfur.
28. desember 2006 klukkan 01:29

Engin athugasemd
25desember

éta jólamat

Í dag ku vera dagur ofáts um land allt. Mun ég vanda mig við að halda þennan dag hátíðlegan með aðstoð móður minnar sem ætlar að sjá til þess að ég verði í jogging buxum það sem eftir er af árinu. Þetta byrjar með mjög þykkum grjónagraut um miðjan daginn ásamt hangikjetssmakki úr reykkofa föður míns en svo er það nart og sælgætisát fram að kvöld mat. Kvelmaturinn er londonlamb með mjög miklu meðlæti og ét eg ógurlega að þessum kræsingum. Er þessu svo skolað niður með hættulega miklu magni af ís. Restin af kveldinu fer væntanlega í að liggja afvelta og geta ekki hreyft sig. Gleðileg jólBrosandi
25. desember 2006 klukkan 01:15

Engin athugasemd
04desember

og enn er haldið áfram

Jú helgin að baki og allir í stuði. Fínasta helgi þar á ferð. Hlaðborð á flöskudagskveldið og það grand að hætti Pálma Pálssonar í Pálmatré. Mikil gleði mikið étið og áfengisneysla til óhófs ss mjög passlegt.Annars allt með það sama tóm helv....... hamingjaUllandi
04. desember 2006 klukkan 06:51

1 athugasemd
25nóvember

Það vanntar negul nagla

Jabb svo sannarlega er heimurinn skrítinn og skemmtilegur staður. Kannski er það bara ég sem er á þessari skoðun en þetta er þó allavega mín skoðun og vill ég fá að njóta þess að hafa hana. Alltaf eitthvað nýtt að skoða læra og umfram allt láta fara í taugarnar á sér. Ekki að það sé neitt að fara í taugarnar á mér þessa stundina nema vera skildi fólk sem lætur allt og alla fara í taugarnar á sér. Ég nenni allavega ekki að fárast yfir svoleiðis naflakuski núna enda úttroðinn af lambakjöti (ofngrillaður hryggur) og ís þessa stundina akfeitur útbelgdur rangeygður og happy yfir öllu saman.Enda staddur á hótel mömmu hvar annarsstaðar fengi maður slíkar guðaveigar á föstudagskveldi? Jamm staddur í svæten með bilaðan jeppa en þó ökufæran hann er nú bara fastur í fjórhjóladrifinu ekkert sem ekki lagast með nyjum milli kassa. var reyndar að spá í að kíkja inn á heiði á morgun svona smá skottúr. Aldrei að vita hvað dagur í skauti sínu ber. Skoðum málið þegar þar að kemur. nenni ekki að tjá mig meira í bili étið þér bláber herra magnús góðar stundir.
25. nóvember 2006 klukkan 05:19

Engin athugasemd

Aðalvalmynd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan

Tenglar